Hér koma nokkur dæmi um mismunandi myndbönd sem hægt er að nota við að koma skilaboðum á framfæri á sem hagkvæmasta hátt:
I. Vara og þjónusta
1. Vitnisburðir viðskiptavina
Ekkert er meira sannfærandi en að sjá og heyra viðskiptavin mæla með vöru þinni og/eða þjónustu með stuttum, hnitmiðuðum skilaboðum. Þessi myndbönd eru oft notuð sem ítarefni með öðru markaðsefni.
2. Vitnisburður um árangur/áfanga sem hefur náðst
Hér er um viðtal að ræða þar sem viðmælandinn er í mynd en spyrillinn ekki. Þetta getur staðið eitt og sér sem markaðsefni eða ítarefni við önnur markaðsgögn.
3. Reynslusögur
Vitnisburður viðskiptavina ásamt útskýringu á því hvernig varan eða þjónustan hjálpaði við að ná árangri. Reynslusagan er sögð bæði af viðskiptavini og af þul og getur verið 2-5 mínútur að lengd. Sagt er frá vandamáli – lausn og ávinningi, líkt og oft er gert í prentuðu markaðsefni.
4. Viðtöl við vegfarendur
Þessi tegund viðtala eru venjulega gerð til að auglýsa viðburði eða búa til jákvætt umtal. „Spontant“ viðbrögð viðmælenda geta komið skemmtilega á óvart og hjálpað til við að kynna vöru eða þjónustu og aðgreint frá vandamáli sem ef til vill tengjast samkeppnisaðila. Gosdrykkjaframleiðendur, símafyrirtæki og skyndibitastaðir nota oft þessa aðferð í auglýsingum. Stundum er þetta gert heiðarlega en stundum ekki þar sem leikarar eru látnir svara í undirbúnum viðtölum.
5. Ávinningur vöru og/eða þjónustu
Vöru- eða þjónustumyndband er oftast notað snemma í söluferlinu. Hvaða ávinningi skilar varan eða þjónustan? Með skýrum hætti er sýnt hvernig hægt er að leysa vandamál sem væntanlegir kaupendur eru að glíma við. Með myndbandinu nær væntanlegur viðskiptavinur að aðgreina vöru eða þjónustu frá samkeppnisaðila.
6. Hvernig nota á vöruna (notkunarleiðbeiningar)
Notkunarleiðbeiningar sýna hvernig varan virkar og dregur fram kosti sem aðgreinir frá samkeppnisvöru. Þetta er oft tæknilegs eðlis og hefur áhrif á kaupendur sem vilja skoða öll smáatriði í hörgul um virkni vörunnar áður en þeir taka ákvörðun. Þetta getur líka hjálpað tæknimönnum sem til dæmis starfa við uppsetningar/innleiðingar á vöru af þessu tagi.
II. Um fyrirtækið
7. Fyrirtækjakynning (Company profile)
Myndband sem ætlað er fólki sem heimsækir vefsíðu og vill fræðast nánar um fyrirtækið og starfsemi þess. Saga fyrirtækisins, stjórnendur, vörur og þjónusta er kynnt.
8. Skilaboð frá stjórnendum
Stundum er áhrifaríkara fyrir stjórnendur að tala mannamál og sýna á sér andlitið í einföldu myndbandi heldur en að senda frá sér tölvupóst til stafsmanna og/eða samstarfsaðila. Tilefnið getur verið þegar koma þarf reglubundnum skilaboðum á framfæri, eins og til dæmis ársfjórðungsuppgjöri, eða bregðast við óvæntum aðsæðum sem hafa myndast á markaði sem allir þurfa að bregðast við með samræmdu átaki. Slíkt getur verið afar hvetjandi.
9. Kynning á starfsmönnum
Með tilkomu samfélagsmiðla hafa fyrirtæki þurft að endurskipuleggja hvernig þau eiga í samskiptum við umhverfi sitt. Æðstu stjórnendur þurfa ekki alltaf að vera í framlínunni að kynna fyrirtækið. Áhugavert er að sjá og heyra í fólki sem sinnir daglegum störfum innan fyrirtækisins; allt frá þjónustufulltrúum til tæknimanna, bókara, millistjórnenda og allt þar á milli. Verðmæti hvers fyrirtækis eru starfsmenn þess og af hverju ekki að sýna það?
III. Kennslumyndbönd
10 Þjálfun starfsmanna í sölu og þjónustu
Hvernig á að selja eða þjónusta vörur fyrirtækisins? Einföld og skýr kennslumyndbönd eru að ryðja sér til rúms sem geta leyst kostnaðarsöm námskeið af hólmi. Hægt er að koma skilaboðum á framfæri á áhrifaríkan hátt sem fjallar um hvað gerir vöruna/þjónustuna sérstaka; hvað selur hana, hagkvæmni og nytsemi, hvernig á að svara spurningum viðskiptarvina og yfirstíga hindranir við sölu, um eftirfylgni, þjónustu og hvernig á að svara algengum spurningum.
11. Leiðbeiningar
Í stað leiðbeiningabæklings, sem fáir nenna að lesa, er framleitt myndband sem útskýrir virkni vöru fyrir viðskiptavini og hvernig á að setja hana upp, stilla, nota og haga viðhaldi. Tilgangur myndbandsins er að spara kostnað við eftirfylgni og þjónustu við sölu þannig að viðskiptavinir geti hjálpað sér sjálfir.
IV. Innri samskipti
12. Innri markaðssetning
Myndband sem kynnir viðskiptaáætlun, ný tækifæri, áfangasigra og árangur fyrir starfsmönnum. Markmiðið er að auka þekkingu og bæta samheldni starfsmanna sem oft hafa hvorki tíma né getu til að kynna sér hvað önnur teymi innan fyrirtækisins eru að fást við (á við um stærri fyrirtæki og rekstrareiningar).
13. Stafsmannahandbók
Nýir starfsmenn fá strax skilning á siðareglum, boðleiðum, sögu fyrirtækisins og gildum með myndbandi í stað handbókar sem rykfellur í hillum.
V. Auglýsingar og markaðssetning
14. Auglýsingar
Auglýsing sem birtist fyrir framan og/eða eftir fréttamyndband á til dæmis mbl.is eða visir.is. Hún getur einnig birst á sjónvarpsskjám í biðsölum, kvikmyndahúsum og inni í verslunum þar sem hægt er að ná athygli fjölmenns hóps á hagkvæman hátt.
15. „Viral“ myndband
Myndband verður „viral“ þegar fólk sér sig knúið til að deila því áfram á samfélagsmiðlum. Til að ná athygli þurfa „viral“ myndbönd að vera skemmtileg, sjokkerandi eða vera með djúp, innihaldsrík skilaboð.
16. Kynningarmyndband
Kynningarmyndband getur verið afar áhrifaríkt við sölu neysluvöru. Myndbandið er í viðtalsformi þar sem farið er yfir kosti vörunnar.
17. Kynning á lausn
Hvernig leysir tiltekin vara vandamál fyrir áhorfendur? Byko hefur verið að gera þetta á samfélagsmiðlum með góðum árangri undanfarið. Kennt er hvernig á að þrífa verkfæri og bera sig að við garðsláttinn, svo dæmi séu nefnd.
18. Myndband á vefsíðu sem sölutól
Oft virkar vel að hafa myndband, frekar en texta eða grafík, á heimasíðu sem ætlað er að fá notendur til að bregðast við á ákveðinn hátt (skrá sig á lista, kaupa). Myndbandið svarar öllum spurningum og rökstyður af hverju fólk ætti að taka þessa ákvörðun (“call to action”) á sannfærandi hátt.
VI. Almannatengsl
19. Fréttatilkynning.
Myndband sem ítarefni styður við framsetningu hefðbundinnar fréttatilkynningar. Þetta auðveldar til dæmis sjónvarpsfréttamönnum vinnuna að leita að myndefni sem tengist fréttinni. Myndbandið auðveldar líka bloggurum og skoðanamyndandi fólki á samfélagsmiðlum að deila því áfram. Þörfin fyrir myndefni er alltaf til staðar.
20. Samfélagsleg ábyrgð
Sýndu hvað fyrirtækið er að gera, en ekki bara tala um það, ef fyrirtæki þitt tekur þátt í verkefnum sem auka við samfélagslega ábyrgð og styður við mikilvægt málefni. Taktu það upp og dreifðu því áfram.
VII. Viðburðir
21. Viðburðir
*Kynningarefni fyrir vörusýningar, fundi og ráðstefnur.
*Upptaka af fyrirlestrum á ráðstefnum
22. Pallborð
Fáðu fjóra til sex af þínum bestu viðskiptavinum ásamt öðrum sérfræðingum um iðngreinina sem þú ert í til að taka þátt í pallborðssumræðum um þróun markaðarins; tækifæri og ógnanir og taktu það upp á myndband. Það sem verður sagt þarna gæti orðið mjög verðmætt að vísa til í markaðsherferðum.
23. Q&A sérfræðinga
Á ráðstefnum og vörusýningum eru mörg tækifæri sem skapast við að spyrja sérfróða óformlegra spurninga um vöru þína og þjónustu sem viðskiptavinir þínir hafa hag af að vita. Myndband af þessu tagi getur leitt til nýrra fyrirspurna um vöru þína og/eða þjónustu.
VIII. Fleiri dæmi um hagnýt myndbönd
24. Ráðningarmyndband
Eitt það mikilvægasta í öllum fyrirtækjum er að ráða rétta starfsfólkið. Það getur verið áhrifaríkt að sýna myndband fyrirtækjamenningunni, starfsandanum og þeirri leið sem fyrirtækið er á.
25. Ummæli notenda
Ef mynd segir meira en mörg orð þá eru ummæli notenda vöru þinnar á myndbandi ómetanlegt. Safnaðu þeim saman og komdu á framfæri.
26. Algengar spurningar, svarað á vefsíðu
Stundum er hægt að skipta út texta á heimasíðu með svörum við algengum spurningum (faq) með myndbandi. Þulur svarar þá spurningunum á trúverðugan hátt og myndmál er notað til stuðnings.